Óháður ráðgjafi um gervigreind

Gervigreind í ykkar rekstri, á ykkar forsendum.

Ég heiti Ragnar Þ. Ágústsson og er gervigreindarstjóri til leigu (CAIO). Ég hjálpa fyrirtækjum að nýta gervigreind, frá stefnu til smíði: hvar hún borgar sig, hvað á að láta vera og hvernig á að gera það örugglega. Þegar það á við smíða ég lausnirnar sjálfur, á ykkar gögnum, hugbúnaður sem þið eigið. Ég sel engan hugbúnað og engin leyfi, og þið eruð hvorki bundin mér né seljendum.

Hvar standið þið? Sjálfsmatið er átta spurningar og þið fáið svar strax. Fyrsti fundur er ein klukkustund og kostar ekkert.

Íslensk fyrirtæki og gervigreind
48%nota gervigreindarhugbúnað
14%hafa stefnu um gervigreind

Hagstofa Íslands, mars 2026. Svör frá 848 fyrirtækjum.

Staðan

Þrennt sem flest fyrirtæki eiga sameiginlegt

  • Áskrift sem allir nota svolítið

    Copilot eða ChatGPT er komið inn og fólk notar það í stök verk. Enginn veit hverju það skilar.

  • Tilraunir sem komust aldrei í bókhaldið

    Ein eða tvær prufur fóru vel af stað og fjöruðu svo út. Ekkert breyttist í rekstrinum.

  • Stjórn sem spyr um tölu

    Stjórnin spyr hvað gervigreindin geri fyrir félagið. Svarið þarf að vera í krónum.

Nálgun

Hvernig ég vinn

Ég vinn inni í fyrirtækinu, með ykkar fólki. Verkið getur verið stefna og forgangsröðun með stjórnendum, smíði á lausnum, eða hvort tveggja. Smíðin getur verið tiltekt í gögnum, tenging sem opnar kerfin ykkar fyrir gervigreind, eða erindreki (agent): forrit sem vinnur afmörkuð verk á ykkar gögnum eftir reglum sem þið setjið.

  1. Samtal

    Við byrjum á samtali um reksturinn: hvað tekur tíma, hvað kostar peninga og hvað þið viljið að gervigreind geri fyrir ykkur. Þið þurfið ekki að vita svarið fyrirfram.

  2. Endurhugsun

    Gervigreind ofan á gamalt ferli gerir gamla ferlið hraðara, með sömu flöskuhálsum og sömu óþörfu skrefum. Því spyr ég fyrst um hvert verk: ef við værum að byggja þetta í dag, myndum við byggja það svona? Óþörf skref eru fjarlægð áður en nokkuð er smíðað. Þetta er fyrsta skref greiningarinnar og hvers nýs verks eftir það.

  3. Greining

    Ég fer í gegnum kerfin, gögnin og verkin með ykkar fólki og segi hreint út hvar gervigreind borgar sig og hvað á að láta vera. Niðurstaðan er skýr tillaga: stefna, reglur, smíði, eða ekkert.

  4. Framkvæmd

    Stundum er verkið stefna, notkunarreglur og forgangsröðun með stjórnendum. Stundum smíði: tiltekt í gögnum og gagnalag sem þið eigið, MCP-þjónn sem tengir kerfin ykkar við gervigreindartólin sem fólkið notar þegar, mælaborð, eða erindrekar (agents) sem vinna afmörkuð verk eftir reglum sem þið setjið, til dæmis greiningu á tekjum og kostnaði eða á samskiptum við viðskiptavini. Ég geri það sem verkið kallar á.

  5. Þið takið við

    Ykkar fólk lærir að nota, reka og byggja ofan á það sem við gerum, í vikulegri vinnustofu. Þið eigið lausn sem auðvelt er að laga áfram að nýjum þörfum og nýrri tækni, sem breytist hratt. Daginn sem samstarfinu lýkur hættir ekkert að virka.

Eignarhald

Hugbúnaður sem þið eigið

Kóðinn, lyklarnir og öll umhverfi eru ykkar frá fyrsta degi. Þið eruð hvorki bundin mér né neinum tækniseljanda. Ég vil heldur ekki að þið farið úr einni seljandalæsingu (vendor lock-in) í aðra: þið eigið að geta skipt um líkan, þjónustu og ráðgjafa þegar betra býðst.

  • Allt á ykkar nafni

    Kóðasafn, skýreikningur, gagnagrunnur, lyklar, öpp og atvikaskrá eru stofnuð á ykkar nafni.

  • Opnir staðlar

    Til dæmis PostgreSQL, MCP og gámar. Ég nota það sem hentar ykkur. Að skipta um líkan eða skýjaþjónustu er stilling og nokkurra daga vinna.

  • Þið fylgið tækninni

    Þegar betra líkan eða ódýrari þjónusta býðst skiptið þið. Hver lausn sem notar líkan hefur varalíkan frá öðrum framleiðanda sem er prófað reglulega.

  • Þið haldið áfram án mín

    Útgöngupróf sýnir að ykkar fólk, eða UT-þjónustuaðili ykkar, getur rekið allt, breytt því og endurheimt það án mín. Ef eitthvað krefst minnar aðkomu laga ég það á eigin kostnað.

Beislið

Sex reglur sem fylgja hverju verki

Gervigreind sem má gera hvað sem er er áhætta. Þegar lausn fær aðgang að gögnunum ykkar, hvort sem það er erindreki eða tenging, gilda þessar reglur frá fyrsta degi og standa í samningnum.

  • Aðeins lesaðgangur í upphafi

    Lausnin sér aðeins þau gögn sem þið hafið samþykkt.

  • Heimildir vinnast með reynslu

    Í upphafi samþykkir manneskja hvert skrif. Afturkræfar aðgerðir með lága upphæð fá sjálfvirkt samþykki þegar reynslan sýnir að það er öruggt. Greiðslur, samninga og breytingar á upplýsingum um viðskiptavini þarf alltaf nafngreind manneskja að samþykkja.

  • Ykkar eigin reikningar

    Lyklar, gögn og líkan eru á reikningum sem þið eigið.

  • Texti utan frá er gögn

    Það sem kemur inn í pósti eða af vef getur aldrei skipað lausninni fyrir.

  • Hver aðgerð er skráð

    Atvikaskrá sem þið geymið og getið sýnt stjórn, endurskoðanda eða Persónuvernd.

  • Slökkvari

    Þið getið stöðvað hverja lausn strax, án þess að hringja í mig.

Öryggi

Netöryggi, upplýsingaöryggi og persónuvernd

Ég bar ábyrgð á öryggismálum og regluverki í fjármálafyrirtæki og geri sömu kröfur hjá ykkur. Öryggið er hannað inn frá fyrsta degi.

  • Minnsti nauðsynlegi aðgangur

    Hver lausn og hver notandi fær aðeins þann aðgang sem verkið krefst. Innskráning er með fjölþátta auðkenningu og lyklar eru geymdir í lyklageymslu, aldrei í kóðanum.

  • Dulkóðun

    Gögn eru dulkóðuð í flutningi og í geymslu.

  • Veikleikar og uppfærslur

    Kóðinn er rýndur með tilliti til öryggis áður en hann fer í rekstur, og hugbúnaðarsöfn eru vöktuð og uppfærð.

  • Persónuupplýsingar

    Þið eruð ábyrgðaraðili gagnanna. Þar sem lausn vinnur með persónuupplýsingar gerum við vinnslusamning (data processing agreement) og mat á áhrifum á persónuvernd áður en hún fer í gang. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018.

  • Atvik

    Ef eitthvað fer úrskeiðis fáið þið strax að vita hvað gerðist og hvað var gert, og ég hjálpa ykkur að meta hvort tilkynna þurfi það til Persónuverndar.

Hvar gögnin eru

Allt sem við smíðum og geymum er í ykkar eigin kerfum. Líkanið keyrir til dæmis hjá Amazon Web Services innan Evrópu, á ykkar eigin reikningi; þá er AWS vinnsluaðili, Anthropic hefur engan aðgang að fyrirspurnum eða svörum, ekkert er geymt og gögnin ykkar eru aldrei notuð til þjálfunar.

Mæling

Árangur sem þið getið sýnt

Í krónum þar sem það er hægt, stemmt við bókhaldið. Þar sem það er ekki hægt notum við mælikvarða sem þið treystið.

  • Grunnlína

    Byggð á sögu ykkar og borin saman við eftirspurn í landinu, svo árstíðasveiflur villi ekki um fyrir okkur.

  • Samanburður

    Þar sem hægt er fer erindrekinn í gang vöru fyrir vöru. Það sem ekki var snert sýnir hvað hefði gerst hvort eð er.

  • Tími

    Sparaður tími er aðeins talinn í krónum þegar hann sparar raunverulegan launakostnað.

  • Skýrsla

    Ein blaðsíða á mánuði, stemmd við uppgjör og bókhald.

Fyrsta skref

Hvernig við byrjum

Fyrirtæki eru ólík og þarfirnar líka. Þess vegna byrjum við á samtali, og ég sníð samstarfið að stærð ykkar og þörf. Nánara efni, fyrirkomulag og verð fylgja eftir fyrsta fund.

  1. Byrjið hér

    Fyrsti fundur

    Ein klukkustund

    Þið segið frá rekstrinum og því sem þið viljið að gervigreind leysi. Ég hlusta, spyr og segi hvað ég held að borgi sig að byrja á. Gott er að taka sjálfsmatið fyrir fundinn.

  2. Greining

    Áður en nokkuð er ákveðið

    Hvar gervigreind borgar sig hjá ykkur og hvað á að láta vera. Endurhugsað ferli fyrir hvert verk, kort af kerfum og gögnum, mælikvarði og grunnlína á hverju verki, og skýr tillaga um næsta skref: stefna, reglur, smíði, eða ekkert. Umfangið fer eftir stærð fyrirtækisins.

  3. Samstarf

    Sniðið að ykkur

    Gervigreindarstjóri til leigu (CAIO) sem leiðir, smíðar, eða hvort tveggja: forgangsröðun, notkunarreglur og beislið, rýni á tilboðum seljenda og á því sem ykkar fólk eða aðrir smíða, lína til stjórnar, og þegar það á við smíðin sjálf með ykkar fólki. Takturinn og lengdin ráðast af stærð ykkar og þörf, frá afmörkuðu verkefni hjá litlu fyrirtæki til fasts takts með stjórnendum hjá stóru. Allt skrifað í verksamning með skýrum lokadegi.

Líkön og ský eru alltaf á ykkar eigin reikningum, á kostnaðarverði og án álagningar.

Óhæði

Fimm spurningar sem þið ættuð að spyrja hvern ráðgjafa

Hver borgar þér?
Aðeins þið, samkvæmt samningi og reikningi. Engin söluþóknun, engin tilvísunargjöld og engin álagning frá neinum seljanda.
Er þér borgað fyrir að kynna einhverja vöru?
Nei. Ég fylgist með tækninni hjá öllum helstu seljendum, en enginn þeirra borgar mér neitt.
Færðu eitthvað ef við veljum annað tól eða smíðum sjálf?
Nei. Ég fæ aðeins greitt fyrir mína vinnu, hvaða leið sem þið veljið.
Seturðu valkosti á blað?
Já. Hver tillaga um að kaupa eða smíða nefnir valkostina sem voru skoðaðir og hvers vegna þeir urðu undir.
Myndirðu ráðleggja okkur að gera ekkert?
Já, þegar það er rétta svarið.

Hagsmunir mínir

Ég á Sóleyju, sem er bókunarrás fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þegar verkefni snertir dreifileiðir í ferðaþjónustu segi ég það fyrst, skrifa ráðleggingarnar niður með valkostum, og þið getið tekið mín fyrirtæki út fyrir sviga hvenær sem er.

Ég smíða oftast á Claude frá Anthropic og segi það. Enginn seljandi borgar mér neitt og valkostirnir eru alltaf á blaði.

Frumkvöðull

Ég smíða líka mitt eigið fyrirtæki

Sóley er prófunarstaðurinn. Það sem ég ráðlegg öðrum hef ég fyrst smíðað og rekið sjálfur.

Sóley

Ferðaþjónusta

Opið bókunarnet fyrir íslenska ferðaþjónustu. Ferðamenn tala við Sóleyju í Claude, ChatGPT, WhatsApp eða á vefnum. Sóley tengist Bókun hjá ferðaþjónustuaðilum og skrifar bókanir beint í dagatalið þeirra.

  • Í Claude Connectors Directory frá ágúst 2026
  • Í ChatGPT frá september 2026
  • Hannað, smíðað og rekið af mér
soley.travel

Um mig

Ragnar Þ. Ágústsson situr í stól við glugga

Tuttugu og fimm ár í kerfum sem mega ekki stoppa

Ég hef smíðað og rekið kerfi í aldarfjórðung, mest í fjármálaþjónustu þar sem villur kosta peninga og kröfur eftirlitsaðila eru strangar. Ég var ellefu ár í London, stýrði hugbúnaðarþróun Landsbankans og var forstöðumaður upplýsingatækni hjá Fossum í gegnum samruna.

Í júlí 2026 fór ég að smíða mín eigin fyrirtæki og hjálpa öðrum að koma gervigreind í rekstur.

  1. 2026

    Cognia ehf.

    Óháður ráðgjafi um gervigreind og gervigreindarstjóri til leigu (CAIO). Stofnandi Sóleyjar.

  2. 2023–2026

    Fossar fjárfestingarbanki

    Forstöðumaður upplýsingatækni.

  3. 2014–2023

    Landsbankinn

    Yfirmaður hugbúnaðarþróunar, síðar teymisstjóri í Mörkuðum og fjármálum.

  4. 2008–2014

    Man Group og GLG Partners, London

    Stýrði upplýsingatækni sjóðasjóða (Funds of Funds) hjá Man. Síðar smíði viðskiptakerfis (trading platform) hjá vogunarsjóðnum GLG.

  5. 2006–2008

    HSBC og Landsbanki, London

    Smíðaði kerfi fyrir áhættuvarnarbókhald (hedge accounting) hjá HSBC sem er enn í notkun. Síðar yfirmaður hugbúnaðarþróunar í Lundúnaútibúi Landsbankans.

  6. 2000–2003

    Eskill

    Stofnandi.

Executive MBA við Háskóla Íslands, útskrift 2027. BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Samstarf

Þegar verkefnið þarf meira en einn

Ég vinn með öðrum sjálfstæðum ráðgjöfum þegar verkefnið kallar á meira en einn: stefnu fyrir stjórn, stöðumat í eftirlitsskyldu umhverfi, eða að koma rekstri og ábyrgð í fastar skorður. Hvert okkar rekur sína stofu og ber ábyrgð á sinni vinnu. Saman náum við frá stefnu til daglegs reksturs án þess að þið þurfið stóra ráðgjafarstofu, og ég kynni ykkur fyrir þeim þegar verkefnið þarf á þeim að halda.

Hafa samband

Sendu mér línu

Segðu mér frá rekstrinum og hvað þið viljið að breytist. Þið þurfið ekki að vita hvað þið viljið fá, samtalið byrjar þar sem þið eruð.

Netfang
ragnar@cognia.is
Sími
787 0886
LinkedIn
ragnaragustsson